Innlent

Bjarni svarar Össuri fullum hálsi

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Bjarni Harðarson, fyrrum þingmaður og bóksali.
Bjarni Harðarson, fyrrum þingmaður og bóksali.
„Það er skýlaus stefna utanríkisráðherra að hafa þarna hús sem ekki verður opið almenningi. Ég mun berjast á móti henni," segir Bjarni Harðarson, fyrrum þingmaður Framsóknar í samtali við fréttastofu. Hann og Össur Skarphéðinsson hafa munnhöggvist á opinberum vetvangi eftir að Valhöll á þingvöllum brann, en þeir eru á öndverðum meiði um framtíð Valhallarreitsins.

Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagðist Össur ekki vilja að hótel risi aftur á staðnum. Hann benti Bjarna einnig á að hugsa áður en hann skrifar, en Bjarni hafði óskað Össuri til hamingju með Valhallarbrunann. Össur aftók hinsvegar að hlakka yfir brunanum og sagði hann dapurlegan. Bjarni gefur þó lítið fyrir það.

„Það sem ég gagnrýndi hjá honum var að hann barðist fyrir því að þessi gömlu Valhallarhús yrðu máð af yfirborði jarðar. Það kannast hann ekki við núna og þykist fullur söknuðar," segir Bjarni og bætir við að Össur hljóti að fagna brunanum, enda ódýrasta leiðin til að losna við húsin.

„Hitt er náttúrulega ekki svaravert að Össur Skarphéðinsson skuli áminna menn um að hugsa áður en þeir skrifi. Það er fljótgert að vísa því til föðurhúsanna. Það hefði verið betra ef hann hefði hugsað áður en ríkisstjórnin skrifaði og talaði í sambandi við samninga íslands við erlend ríki sem nú kosta þjóðina margföld fjárlög í skuldum."


Tengdar fréttir

Óskar Össuri til hamingju með brunann

Bjarni Harðarson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, óskar Össuri Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, til hamingju með eldvoðann á Þingvöllum og umfjöllun Alþingis um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Össur vill að Bjarni hugsi

Hótel Valhöll er nú rústir einar eftir brunann í fyrradag. Húsið fuðraði upp á örskömmum tíma og mildi þykir að ekki urðu slys á fólki. Hótelrekstur hefur verið í Valhöll frá árinu 1898 en það var flutt á núverandi stað skömmu fyrir Alþingishátíðina árið 1930.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×