Innlent

Baugsmálið hafði áhrif á stofnun sérstaks saksóknara

Úr myndasafni. Málefni Baugs til umfjöllunar í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar 2007.
Úr myndasafni. Málefni Baugs til umfjöllunar í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar 2007.
Baugsmálið varð meðal annars til þess að Alþingi féllst á að stofna embætti sérstaks saksóknara bankahrunsins, fremur en að fela verkið efnahagsbrotadeild Ríkislöglustjóra.

Ákveðið var með lögum frá Alþingi sem samþykkti voru í desember, að stofna embætti sérstaks saksóknara bankahrunsins. Stofnun embættisins á sínum tíma var þó ekki áfallalaus. Til að mynda sótti enginn um starfið í fyrstu atrennu. Þá var deilt um það bak við tjöldin hvort yfir höfuð ætti að stofna embættið eða fela efnahagsbrot tengdum bankahruni efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans.

Í umræðu allsherjarnefndar Alþingis um málið var þetta lagt til. Ríkislögreglustjóri sjálfur var hins vegar á öðru máli; eftir því sem næst verður komist, meðal annars vegna þess að hann var sjálfur vanhæfur í Baugsmálum. Þá þegar þótti viðbúið að fólk að baki Baugi myndi sæta rannsókn vegna bankahrunsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×