Innlent

Þeim fjölgar sem leita sér aðstoðar hjá Stígamótum

Heildarfjöldi einstaklinga sem leituðu aðstoðar hjá Stígamótum jókst um tæp 4% á síðasta ári, samkvæmt ársskýrslu fyrir árið 2008. Þá voru um 10% fleiri viðtöl tekin á síðasta ári, í samanburði við árið 2007. Ekki hafa jafn margir einstaklingar leitað sér hjálpar hjá Stígamótum í fjölda ára, en samtals komu 547 einstaklingar í viðtal.

Hópnauðganir voru 15 á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri, og það sama gildir um lyfjanauðganir sem voru 14 talsins. Algengast var að nauðgarar væru tveir til þrír saman, og af ofbeldismönnunum voru tæplega 43% undir áhrifum vímuefna.

Mál vegna kláms nær tvöfölduðust á milli áranna 2007 og 2008, eða úr 11 í 21 mál. Þá nýttu 22 konur sér viðtalsþjónustu Stígamóta vegna vændis á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×