Is it true? vinsælasta lagið í Svíþjóð 17. maí 2009 11:43 Óskar Páll Sveinsson himin lifandi.
Framlag Íslendinga í Eurovision, Is it true? er í fyrsta sæti á netlistanum Itunes í Svíþjóð og í öðru sæti á sama lista í Finnlandi. Það þýðir að lagið er oftast halað niður á netinu í viðkomandi löndum. Milljónir nota Itunes í veröldinni. Þar af hundruðir þúsunda í Svíþjóð. Sænski lagahöfundurinn er þegar búinn að bjóða Óskari að koma til Svíþjóðar að semja tónlist fyrir sænsku júróvisjón keppnina. Vísir náði tali af höfundi lagsins, Óskari Páli Sveinssyni á flugvellinum í Kaupmannahöfn. Hann sagðist vera þreyttur eftir ótrúlegt ævintýri. „Maður er eiginlega enn þá að átta sig á þessu. Þetta er að síast hægt og rólega inn en þetta var mjög óraunverulegt í græna herberginu í gær," segir Óskar Páll sem er dálítið vantrúaður á eigin velgengi enn sem komið er. „Í fyrstu var ég frekar áhyggjufullur. Fyrstu tvær þjóðirnar gáfu okkur engin stig þannig ég hugsaði: jæja, lendir maður þá bara í sextánda sætinu," segir Óskar sem óttaðist að úrslitin færu mun verr en raunin varð. Hann segist hafa tekið gleði sína á ný þegar stigin tóku að hrúgast inn. Aðspurður hvaða þýðingu sigurinn hafi fyrir hann svarar Óskar: „Þetta lag verður spilað og kynnt víða. Það er til að mynda á toppnum á Itunes-listanum í Svíþjóð. Ég vissi það reyndar ekki fyrr en sænski lagahöfundurinn óskaði mér til hamingju með það." Sænski lagahöfundurinn varð reyndar svo heillaður af framlagi Óskars að hann bauð honum að koma til Svíþjóðar og semja júróvisjón framlag til þess að keppa í undankeppninni þar í landi. Það gerði sá spænski einnig. Sjálfur segir Óskar Páll að hann taki öllu slíku með ró - það eina sem hann þrái núna sé hvíld. „Við höfum ekki fengið að hvílast mikið hérna úti þannig ég geri ráð fyrir því að ég muni sofa í tvo daga þegar ég get," segir Óskar með þreytulegri röddu. Óskar Páll og Jóhann Guðrún auk föruneytis munu lenda á Leifsstöð upp úr þrjú í dag.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira