Innlent

Þúsund störf í púkkið

Óskar Bergsson
Óskar Bergsson

„Við þessar aðstæður teljum við að þetta séu mjög góð kjör,“ segir Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, um væntanlega fimm milljarða króna lántöku Reykjavíkurborgar hjá lífeyrissjóðum. Um er að ræða verðtryggð skuldabréf með 4,4 prósenta vöxtum til 45 ára.

Lánsféð er ætlað til ýmissa framkvæmda í borginni og var ráð fyrir því gert í fjárhagsáætlun þessa árs. Óskar segir að auk þess sem lánskjörin séu hagstæð fái borgin framkvæmdirnar sjálfar á lægra verði en áður hafi verið.

„Þetta er mjög mikilvægt. Það verða til 650 störf auk þess sem um 350 störf eru vegna viðhaldsverkefna sem við fjármögnum með öðrum hætti. Því má segja að Reykjavíkurborg sé að leggja eitt þúsund störf í púkkið, fyrir utan sumarstörf og vinnuskóla.“

Meðal stórra framkvæmda nefnir Óskar uppbyggingu Sæunnarskóla og Norðlingaskóla í Grafarholti. Í þá fara annars vegar 400 milljónir króna og hins vegar 300 milljónir. Þá fara 100 milljónir í leikskóla í Úlfarsárdal sem ákveðið hefur verið að þjóni einnig sem grunnskóli. „Fólk í Úlfarsárdal hefur haft áhyggjur af að ekki eigi að fara í neina þjónustuuppbyggingu þar,“ segir Óskar.

Af öðrum stórum verkefnum má nefna að 500 milljónir fara í uppbyggingu á reitnum við Lækjartorg þar sem hús eyðilöguðust í eldsvoða í apríl 2007. Hundrað milljónir fara í að standsetja húsin á Laugavegi 4 og 6. Í endurbætur á Tjarnarbíói fara 175 milljónir.

Þá má nefna að 315 milljónir verða notaðar í framkvæmdir við 110 rýma hjúkrunarheimili á Suðurlandsbraut 66 og 100 milljónir í skólasel í Kleifarseli 18. Í gervigrasvöll Víkinga í Stjörnugróf fara 75 milljónir, 60 milljónir í endurnýjun grasvallar hjá Þrótti í Laugardal og 45 milljónir í félagshús Leiknis í Breiðholti.

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×