Sakar bæjarfulltrúa um óheiðarleika 29. maí 2009 11:27 Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs gagnrýnir andstæðing sinn harkalega fyrir að benda á að eiginmaður hennar var ráðinn forstöðumaður íþróttamiðstöðvar bæjarins.
Formaður Bæjarráðs Vestmannaeyja, Páley Borgþórsdóttir, segir í grein sem birtist á Eyjar.net, að hana blöskri óheiðarleiki oddvita V-listans. Ástæðan fyrir skrifum Páleyjar eru átök sem hafa verið innan bæjarstjórnar vegna mannaráðningar í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyjar. Þá var eiginmaður Páleyjar ráðinn sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar en einnig var faðir bæjarstjóra Vestmannaeyja, Elliða Vignissonar, ráðinn sem umsjónarmaður íþróttahússins. V-listinn gagnrýndi mannaráðningarnar harðlega og vildu meina að annarsvegar hefðu Páley og Elliði átt að víkja af fundum þar sem málin voru rædd og skoðuð. Þá kom fram í bókun að V-listinn stæði í þeirri trú að bæjarstjórn væri að sniðganga bæjarsamþykktir varðandi ráðningar yfirmanna og kallaði á faglega verkferla varðandi mannaráðningar. Í viðtali við Vísi fyrr í vikunni hafnaði Elliði ásökunum V-listans alfarið og sagði forstöðumann Íþróttamiðstöðvarinnar alls ekki yfirmann og því ætti bæjarsamþykktin ekki við. Þá kom einnig fram að nöfn venslamanna höfðu verið lögð fram til kynningar á bæjarráðsfundi. Þar af leiðandi hafi bæjarfulltrúunum ekki verið skylt að víkja af fundi. Í pistli sínum ræðst Páley harkalega á oddvita V-listans og sakar hann um óheiðarleg vinnubrögð og tornæmi á fundarsköp. „[...] [S]íðar kom svo fram ásökun í fjölmiðlum frá Páli Scheving um að við höfum hugsanlega brotið lög með því að víkja ekki sæti þegar ráðningarnar voru ræddar og samþykktar. Er það svo að Páll Scheving áttar sig ekki á því hvort mál eru til kynningar eða ákvörðunar eða er það svo að hann er óheiðarlegur og segir ekki satt og rétt frá?" segir Páley að lokum.Greinina hennar má lesa í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Brutu hugsanlega sveitastjórnalög „Þau viku ekki af fundi bæjarráðs né bæjarstjórnar þegar ráðningarnar voru ræddar og samþykktar," segir Páll Scheving Ingvarsson, oddviti V-listans í Vestmannaeyjum, en hann gagnrýnir verklag við ráðningar meirihlutans harðlega. 26. maí 2009 11:28 Elliði Vignisson: Guð forði okkur frá pólitískum ráðningum „Hann karl faðir minn er búinn að starfa hjá bænum síðan árið 1967, eða tveimur árum áður en ég fæddist. Þannig ég kom nú ekki beint að ráðningunni hans," segir bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, en minnihlutinn hefur gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir óeðlilegar ráðningar í íþróttamiðstöð bæjarins. 26. maí 2009 12:41 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira
Brutu hugsanlega sveitastjórnalög „Þau viku ekki af fundi bæjarráðs né bæjarstjórnar þegar ráðningarnar voru ræddar og samþykktar," segir Páll Scheving Ingvarsson, oddviti V-listans í Vestmannaeyjum, en hann gagnrýnir verklag við ráðningar meirihlutans harðlega. 26. maí 2009 11:28
Elliði Vignisson: Guð forði okkur frá pólitískum ráðningum „Hann karl faðir minn er búinn að starfa hjá bænum síðan árið 1967, eða tveimur árum áður en ég fæddist. Þannig ég kom nú ekki beint að ráðningunni hans," segir bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, en minnihlutinn hefur gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir óeðlilegar ráðningar í íþróttamiðstöð bæjarins. 26. maí 2009 12:41