Fipaðist á hlaupabretti, fór í mál og tapaði Valur Grettisson skrifar 29. maí 2009 15:38 Konan braut á sér hnéskelina eftir að henni fipaðist á hlaupabrettinu. Mynd tengist ekki fréttinni.
Tryggingamiðstöðin var sýknuð af skaðabótakröfu vegna óhapps sem varð í heilsuræktarstöðinni Hreyfigreiningu ehf árið 2006. Forsaga málsins er sú að kona á fimmtugsaldrinum mætti í heilsuræktina og bjóst þá við að finna einkaþjálfara sem myndi fara með henni í salinn. Ekki náðist samstundis í einkaþjálfarann vegna bilunar í tölvubúnaði og ákvað konan þá að fara sjálf inn í tækjasal heilsuræktarinnar. Hún lét afgreiðslustúlku vita að hún hugðist fara inn í salinn til þess að hita sig upp. Konan fór á hlaupabretti á meðan hún beið eftir einkaþjálfaranum. Var hún nýbúin að gangsetja brettið og var að auka hraðann þegar leiðbeinandinn gekk inn í salinn fyrir aftan hana og kallaði nafn hennar. Henni brá svo við það að hún missti jafnvægið, hentist aftur á bak og lenti með vinstra hnéð á gólfinu þannig að hnéskelin brotnaði. Hún höfðaði mál í kjölfarið og vildi meina að þjálfarinn hafi sýnt af sér gáleysi með því að kalla nafn hennar. Þá vildi hún meina að það væri vítavert gáleysi hjá heilsuræktarstöðinni að leyfa henni að fara inn í salinn án fylgdar þjálfarans. Að lokum gerði hún athugasemd við bilun tölvukerfisins sem var forsenda þess að ekki náðist í þjálfarann. Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur féllst ekki á þessi rök. Í dómsorði kemur fram að atvik séu óljós. Þó gat dómur ekki tekið undir að það hafi verið gáleysislegt hjá þjálfaranum að kalla nafn hennar í ljósi þess að þau höfðu aldrei hitt hvort annað. Einhvernvegin varð hann að koma sér í samband við konuna. Varðandi tölvubilunina þá þótti dómi vandséð hvernig slysið hafi orsakast af því. Að auki hafi konan farið á eigin forsendum inn í tækjasalinn og óskaði ekki sjálfviljug eftir leiðbeiningum um hlaupabrettið. Þar af leiðandi var Tryggingamiðstöðin sýknuð af skaðabótaábyrgð.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Sjá meira