Innlent

Fipaðist á hlaupabretti, fór í mál og tapaði

Valur Grettisson skrifar
Konan braut á sér hnéskelina eftir að henni fipaðist á hlaupabrettinu. Mynd tengist ekki fréttinni.
Konan braut á sér hnéskelina eftir að henni fipaðist á hlaupabrettinu. Mynd tengist ekki fréttinni.

Tryggingamiðstöðin var sýknuð af skaðabótakröfu vegna óhapps sem varð í heilsuræktarstöðinni Hreyfigreiningu ehf árið 2006.

Forsaga málsins er sú að kona á fimmtugsaldrinum mætti í heilsuræktina og bjóst þá við að finna einkaþjálfara sem myndi fara með henni í salinn. Ekki náðist samstundis í einkaþjálfarann vegna bilunar í tölvubúnaði og ákvað konan þá að fara sjálf inn í tækjasal heilsuræktarinnar. Hún lét afgreiðslustúlku vita að hún hugðist fara inn í salinn til þess að hita sig upp.

Konan fór á hlaupabretti á meðan hún beið eftir einkaþjálfaranum. Var hún nýbúin að gangsetja brettið og var að auka hraðann þegar leiðbeinandinn gekk inn í salinn fyrir aftan hana og kallaði nafn hennar. Henni brá svo við það að hún missti jafnvægið, hentist aftur á bak og lenti með vinstra hnéð á gólfinu þannig að hnéskelin brotnaði.

Hún höfðaði mál í kjölfarið og vildi meina að þjálfarinn hafi sýnt af sér gáleysi með því að kalla nafn hennar. Þá vildi hún meina að það væri vítavert gáleysi hjá heilsuræktarstöðinni að leyfa henni að fara inn í salinn án fylgdar þjálfarans. Að lokum gerði hún athugasemd við bilun tölvukerfisins sem var forsenda þess að ekki náðist í þjálfarann.

Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur féllst ekki á þessi rök. Í dómsorði kemur fram að atvik séu óljós. Þó gat dómur ekki tekið undir að það hafi verið gáleysislegt hjá þjálfaranum að kalla nafn hennar í ljósi þess að þau höfðu aldrei hitt hvort annað. Einhvernvegin varð hann að koma sér í samband við konuna.

Varðandi tölvubilunina þá þótti dómi vandséð hvernig slysið hafi orsakast af því. Að auki hafi konan farið á eigin forsendum inn í tækjasalinn og óskaði ekki sjálfviljug eftir leiðbeiningum um hlaupabrettið.

Þar af leiðandi var Tryggingamiðstöðin sýknuð af skaðabótaábyrgð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×