Starfsmanni á meðferðarheimili sagt upp störfum - sætir rannsókn á kynferðisbroti 24. maí 2009 20:04
Starfsmaður á meðferðarheimli fyrir unglinga á Norðurlandi sem kærður var fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn þremur stúlkum hefur verið sagt upp störfum. Þetta staðfestir Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu í samtali við fréttastofu en rannsókn á málinu er ekki lokið. Maðurinn er grunaður um að hafa brotið gegn stúlkunum sem voru á umræddu meðferðarheimili en maðurinn er á fertugsaldri. Vísir fjallaði um málið í mars en þá hafði borist kæra frá stúlku sem var á heimilinu en sami maður laut rannsókn vegna svipaðra brota fyrir rúmu ári síðan. Þá var honum vikið frá tímabundið. Í því máli voru tvö börn vitni að umræddum brotum en framburður þeirra stangaðist á auk þess sem maðurinn neitaði allan tímann. Rannsókn lögreglu lauk og kæran var feldl niður. Þá var maðurinn fluttur til í starfi og hóf að vinna á meðferðarheimli fyrri drengi þar til því var lokað en þá sneri hann aftur á gamla vinnustaðinn. Í fréttum Sjónvarpsins í kvöld var sagt frá málinu en þar kom fram að nokkrum dögum eftir kæru stúlkunnar hafi komið fram önnur kæra. Þar var á ferðinni stúlkan sem áður hafði neitað að hafa verið beitt ofbeldi. Kæra stúlkunnar sem fyrst kærði manninn var þá tekin upp að nýju. Lögreglan rannsakar því þrjú mál gegn manninum. Bragi segir í samtali við fréttastofu að nokkuð sé síðan manninum var sagt upp störfum. „Sú ákvörðun var tekin af rekstraraðila heimilisins og var óháð því hvort ákært yrði í málinu eða ekki. Í þessu tilviki vorum við sammála rekstraraðila um að best væri að ekki yrði um framhald á störfum hans að ræða. Það snýst ekki um sekt eða sakleysi mannsins heldur var gert til þess að skapa frið um starfsemina," segir Bragi. Ákæra hefur ekki verið gefin út í málinu en rannsókn er enn í gangi.
Tengdar fréttir Kynferðisbrot á meðferðarheimili: Ekki hægt að reka nema ákært sé Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu segir að séu starfsmenn meðferðarheimilis ákærðir fyrir kynferðisbrot sé þeim sagt upp störfum varanlega. Sjái ákæruvaldið hinsvegar ekki ástæðu til þess að gefa út ákæru séu menn í erfiðri stöðu og ekki hægt að reka viðkomandi. Rannsókn fer nú fram á meintum kynferðisbrotum starfsmanns meðferðarheimilis á Norðulandi en honum hefur verið sagt upp störfum tímabundið. Sami maður laut rannsókn vegna svipaðra brota fyrir ári síðan 28. mars 2009 14:12 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Sjá meira
Kynferðisbrot á meðferðarheimili: Ekki hægt að reka nema ákært sé Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu segir að séu starfsmenn meðferðarheimilis ákærðir fyrir kynferðisbrot sé þeim sagt upp störfum varanlega. Sjái ákæruvaldið hinsvegar ekki ástæðu til þess að gefa út ákæru séu menn í erfiðri stöðu og ekki hægt að reka viðkomandi. Rannsókn fer nú fram á meintum kynferðisbrotum starfsmanns meðferðarheimilis á Norðulandi en honum hefur verið sagt upp störfum tímabundið. Sami maður laut rannsókn vegna svipaðra brota fyrir ári síðan 28. mars 2009 14:12