Yfirstjórnin nýtur lítils trausts meðal starfsmanna 3. mars 2009 12:56
Yfirstjórn Nýja Kaupþings nýtur lítils trausts meðal starfsmanna samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum könnunar sem gerð var meðal starfsmanna bankans. Í gegnum árin hafa verið gerðar kannanir hjá Kaupþingi sem meðal annars gefa vísbendingar um starfsanda og menningu í bankanum. Capacent Gallup gerði nýverið slíka könnun meðal starfsmanna hjá hinum nýja banka, en margt hefur breyst í efnahagsþrengingunum, og var því nýjum spurningum bætt við og öðrum breytt í ljósi aðstæðna. Berghildur Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Kaupþings, segir bráðabirgðaniðurstöður liggja fyrir, en þær séu trúnaðarupplýsingar enn sem komið er, enda sé ekki búið að fullvinna upplýsingarnar úr könuninni. Aðspurð um hvort stjórn Nýja Kaupþings og bankastjóri njóti lítils trausts meðal starfsmanna, segir hún rétt að mælingar á trausti hafi ekki komið jafn vel út og í fyrri könnunum. Að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig, en sagði þó að margir jákvæðir þættir hefðu einnig komið fram. Talsverð hreyfing hefur verið á starfsfólki Kaupþings að undanförnu, bæði hefur starfsmönnum verið sagt upp og þeir hætt af sjálfsdáðum, og hefur fréttastofan heimildir fyrir því að nokkurrar óánægju gæti í bankanum, ekki síst vegna þess að stjórnun þyki losaraleg. Um 900 manns vinna nú hjá Kaupþingi, en starfsmönnum hefur fækkað um nærri hundrað og níutíu síðan bankinn fór undir stjórn ríkisins. Fimm stjórnendur bankans sögðu upp störfum í gær.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira