Þórður tjáir sig ekki um brottreksturinn 9. ágúst 2009 18:40
Þórður Þorgeirsson knapi sem rekinn var úr landsliði íslenskra hestamanna vegna agabrota segir að gróflega hafi verið brotið á sér og hann leiti nú réttar síns vegna málsins. Greint var frá brottrekstrinum á hestafrettir.is í gær en Þórður var valinn í landsliðið sem kynbótaknapi og átti að sýna stóðhestinn Kjarna frá Auðsholtshjáleigu á yfirlitssýningu í gær. Síðastliðið sunnudagskvöld var haldið svokallað Landakvöld á mótssvæðinu í Brunnadern. Myndbandi frá því kvöldi hefur verið lekið á vefsíðuna Youtube en á því sjást landsliðsmennirnir stíga sporið við hin ýmsu lög en Þórður hefur sig þó hvað mest í frammi. Þórður segist í samtali við fréttastofu ekki vilja tjá sig um málið en hann segir gróflega hafa verið brotið á sér. Hann hyggist ræða við sína lögfræðinga og gefa svo frá sér yfirlýsingu í vikunni. Á vefsíðunni Hestafréttir.is er rætt við Einar Öder Magnússon landsliðseinvaldur sem segist hafa varað Þórð við, en það ekki dugað. Hann segir agabrot af þessu tagi ófyrirgefanleg og hestamennskunni til vansa. Aganefnd ÍSÍ muni taka nánar á málinu. Þrátt fyrir þetta atvik fékk íslenska landsliðið liðsverðlaun sem veitt eru fyrir góðan árangur á mótinu. Þá varð Jóhann Skúlason sem keppti fyrir Íslands hönd á hestinum Hvini frá Holtsmúla heimsmeistari í tölti og fer því heim með hið eftirsótta tölthorn.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Sjá meira