Vísar ásökunum Gunnars Páls á bug 30. janúar 2009 09:51 Kristinn Örn Jóhannesson.
Kristinn Örn Jóhannesson, frambjóðandi í formannskjöri VR hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Gunnars Páls Pálssonar í fréttum Stöðvar 2 þann 28. janúar. Þar vísar hann ásökunum Páls Gunnars um að skjölum úr Kaupþingi sé lekið í fjölmiðla til þess að hafa áhrif á formannskosninguna á bug, fyrir sitt leyti. „Í viðtali við Höskuld Kára Schram fréttamann Stöðvar 2 í kvöldfréttum 28. janúar, daginn eftir að Gunnar Páll Pálsson var kjörinn frambjóðandi þar sem um 30% trúnaðarmanna, úr hans innsta hring, greiddu atkvæði gegn honum sakar hann mótframbjóðendur sína um óeðlilegan aðgang og dreifingu á upplýsingum úr gamla Kaupþingi. Slíkar ásakanir eru fjarstæðukenndar og vísa ég þeim til föðurhúsa," segir Kristinn Örn. „Þessu til stuðnings þá bárust fréttir úr Kastljósi af vafasömu 280 milljarða láni til athafnamannsins Tchenguiz fyrst á sama tíma og talning atkvæða í formannskjöri fór fram. Spyrja má hvort úrslit kosninga á meðal trúnaðarmanna hefði ekki farið öðruvísi ef þær fréttir hefðu borist fyrr?." spyr Kristinn. „Sömuleiðis má spyrja hvort ekki hefði verið heppilegra fyrir mótframbjóðendur Gunnars Páls, ef fréttir af eignatilfærslum stjórnenda Kaupþings hefðu borist fyrir fundinn 27. janúar. Svari hver fyrir sig. Fullyrðingar Gunnars Páls lýsa helst örvingluðum manni með slæman málstað að verja. Þær bera með sér, svo ekki verður um villst, að Gunnar Páll er úr öllum tengslum við félagsmenn sína í VR og almenning allan," bætir hann við. Kristinn ítrekar að hann hafi engin gögn séð og enn síður haft undir höndunum gögn sem tengjast Kaupþingi hinu fallna. „Allar mínar upplýsingar hef ég fengið í gegnum fjölmiðla, metið þær og dregið mínar ályktanir. Í stað þess að fagna því að upplýsingar komi upp á yfirborðið, kvartar Gunnar Páll yfir lekanum sjálfum. Eðlilegra væri að gleðjast yfir að unnið væri að því að upplýsa mál Kaupþings sem hafa haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir félag það sem hann er í forsvari fyrir sem og þjóðina alla." „Má draga af því þá ályktun að hann hafi meiri áhyggjur af stöðu sinni sem formanni VR en hvaða afleiðingar gjörðir hans sem stjórnarmanns og fulltrúa í lánanefnd Kaupþings hefur haft á launamenn þjóðarinnar almennt og félagsmenn VR sérstaklega," segir Kristinn og bætir því við að Gunnar Páll taki „klárlega sína eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni félagsmanna VR sem og alls almennings." „Mér er óskiljanlegt að hann taki alla umfjöllun um Kaupþing til sín nema að hann hafi eitthvað að fela, því þarna voru fleiri stjórnarmenn og margir stjórnendur. Munurinn á Gunnari Páli og þeim er hinsvegar sá að enginn þeirra sækist eftir því að leiða stéttarfélag sem hefur Virðingu og Réttlæti sem kjörorð sitt," segir Kristinn Örn að lokum.
Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Innlent Háhyrning rak á land í Grafarvogi Innlent Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ Innlent „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Innlent Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Innlent Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Erlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Fleiri fréttir Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Yfirtökutilboð í Play og ríkisstjórnin kvikar hvergi með veiðigjöldin „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Sjá meira