Innlent

Gylfi Magnússon verður viðskiptaráðherra

Gylfi Magnússon.
Gylfi Magnússon.

Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, verður viðskiptaráðherra í nýrri ríkisstjórn, sem væntanlega verður kynnt í dag. Þá þykja sterkar líkur á að Björg Thorarensen, prófessor í lögfræði við Háskóla íslands, verði dómsmálaráðherra.

Loks greinir Morgunblaðið frá því að Már Guðmundsson, fyrverandi aðalhagfræðingur Seðlabankans og núverandi aðstoðarframkvæmdastjóri peningamála- og hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans, verði beðinn um að að taka við stjórn Seðlabankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×