Geir: Stjórnarmyndun langt komin áður en Ingibjörg kom heim 30. janúar 2009 13:11 Geir H. Haarde á fundi með sjálfstæðismönnum á Grand Hótel. MYND/GVA
Fullt er út úr dyrum á fundi sjálfstæðismanna á Grand hotel sem hófst klukkan eitt. Á fundinum fer Geir H. Haarde, formaður flokksins og fráfarandi forsætisráðherra yfir stöðuna og það „uppbyggingarstarf sem framundan er í íslensku þjóðfélagi," eins og sagði í tilkynningu frá flokknum. Í máli Geirs kom meðal annars fram að hann telji myndun nýrrar ríkisstjórnar hafa verið langt komna áður en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sneri heim frá Svíþjóð. Að mati Geirs var stjórninni í raun slitið á félagsfundi Samfylkingarinnar sem haldinn var í Þjóðleikhúskjallaranum á miðvikudag í síðustu viku. Hann segist ekki viss um að það hafi verið vilji Ingibjargar Sólrúnar. Í ræðu sinni sagðist Geir einnig þeirrar skoðunar að stjórnmálaátök síðustu daga snúist ekki um persónur. Jóhanna Sigurðardóttir sé mæt kona sem hann hafi átt gott samstarf við. Hann óskaði nýrri ríkisstjórn velfarnaðar. Að sögn Geirs eru líkur á því að Sjálfstæðisflokkurinn muni standa fyrir prófkjörum í flestum kjördæmum á næstu vikum. Hann vill að væntanlegir frambjóðendur komi sér saman um þak á kostnaði í prófkjörunum og að hans mati ætti sá kostnaður ekki að vera nema helmingur þess sem ný kosningalög segja til um. Andra Óttarssyni, framkvæmdastjóra flokksins hefur verið falið að samræma þessar reglur. Í máli Geirs kom meðal annars fram mikil gagnrýni á stöðu Fjármálaeftirlitsins nú um stundir sem hann sagði hafa verið skilið eftir stjórnlaust. Forstjóri, stjórn og viðskiptaráðherra hafi sagt af sér og enginn sé til þess að skipa nýja stjórn. Hátt í sjöhundruð manns eru á fundinum. Fundurinn hófst klukkan 13 og ráðgert er að hann standi til klukkan 17.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Enn skelfur í Bárðarbungu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Fleiri fréttir Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Sjá meira