Ákærður fyrir morðtilraun Valur Grettisson skrifar 16. apríl 2009 14:32 Árásin átti sér stað á Hverfisgötunni í desember.
Hinn rúmlega tvítugi Frans Friðriksson hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann á að hafa veist að manni og stungið hann með hnífi vinstra megin í brjósthol með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættulega áverka. Þá er Frans einnig ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann á að hafa skorið félaga fórnalambsins þegar hann reyndi að forða honum frá atlögu Frans. Það var aðfaranótt laugardags í desember síðast liðnum sem Frans á að hafa stungið manninn við Smiðjustíg við Hverfisgötuna í miðbæ Reykjavíkur. Maðurinn hlaut lífshættulega áverka. Þegar félagi hans kom honum til bjargar þá á Frans að hafa skorið hann á vinstri hendi þannig hann hlaut opið sár á hendi. Frans hefur áður komist í fjölmiðla en það var fyrir tveimur árum þegar félagi hans keyrði á Hamborgarabúlluna sem stendur á horni Geirsgötu og Mýrargötu. Ástæðan fyrir því að félagi Frans ók á veitingastaðinn var sú að hann atti kappi við aðra bifreið með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bílnum sínum með fyrrgreindum afleiðingum. Félagi hans slasaðist illa og svo stúlka sem var með þeim í bílnum. Hún höfuðkúpubrotnaði. Bæði voru þau send á gjörgæslu þar sem hlúið var að sárum þeirra. Í viðtali við Blaðið fyrir tveimur árum síðan sagði Frans: „Ég var búinn að fá mér í glas um kvöldið og þess vegna bað ég strák sem ég var að hitta í fyrsta skipti að keyra bílinn minn heim." Frans segir ökumanninn hafa keyrt ansi hratt alla leiðina og rétt fyrir slysið hafi hann verið í spyrnukeppni við annan ökumann á Ægisgötu. „Ég er ekki bílhræddur og er vanur talsverðum hraða. Ég man samt að rétt fyrir áreksturinn sagðist ökumaðurinn vel kunna að keyra en ég sagði stelpunni hins vegar að fara í belti." Nú hefur Frans verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og svo stórhættulega líkamsárás. Sá sem varð verr út úr árásinni vill þrjár milljónir í skaðabætur, bjargvætturinn krefst hinsvegar þrjúhundruð þúsund króna vegna meiðslanna. Málið var þingfest í Hérasðdómi Reykjavíkur í dag en Frans neitaði sök.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Fleiri fréttir Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Sjá meira