Mannakornabörnin syngja með 22. október 2009 03:45 Elísabet, til vinstri, syngur með mömmu sinni og Ragnheiður með pabba sínum á Nasa í kvöld.Fréttablaðið/Pjetur „
Þetta er mjög skemmtilegt og við náum rosalega vel saman,“ segir söngkonan Elísabet Eyþórsdóttir. Elísabet syngur bakraddir með hljómsveitinni Mannakornum á Nasa í kvöld ásamt Ragnheiði Helgu Pálmadóttur. Og ekki að ástæðulausu – Elísabet er nefnilega dóttir Ellenar Kristjánsdóttur og Ragnheiður er dóttir Pálma Gunnarssonar, en eins og flestir vita eru þau aðalsöngvarar Mannakorna. Mannakornabörnin fá því að syngja með. Elísabet og Ragnheiður hittust fyrst þegar Mannakorn flutti lag í Kastljósinu í síðustu viku. Þær renndu því algjörlega blint í sjóinn, en eru báðar virkilega ánægðar með hvernig raddir þeirra hljóma saman. „Þetta kom mjög vel út og var rosaflott. Mér finnst hún Elísabet alveg ótrúlega góð söngkona. Hún er svo skemmtilega lík mömmu sinni,“ segir Ragnheiður um flutninginn í Kastljósinu og Elísabet tekur undir: „Ragnheiður gæti ekki verið meira frábær.“ Ragnheiður er ekki vön að koma fram og hlakkar mikið til. „Ég er að klára master í lyfjafræði og það er alveg frábært að breyta aðeins til,“ segir hún. Elísabet er öllu vanari á sviðsmanneskja. Hún sendi frá sér plötuna Þriðja leiðin árið 2006, en á henni flutti hún lög Barkar Hrafns Birgissonar við ljóð Einars Más Guðmundssonar. „Það er ómetanlegt að fá að taka þátt í þessu með fjölskyldunni,“ segir Elísabet. „Það er rosalega gaman. Allir í svaka fjöri. Alveg æðislegt.“ Tónleikar Magnúsar Eiríkssonar, Buffs og Mannakorna hefjast klukkan 20.30 í kvöld. Tilefni þeirra er útgáfa safnplötu Magnúsar, Reyndu aftur, sem hann vann með Buffi.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira