Eldvarnareftirlitið fjarlægði eldfiman köngulóarvef 30. október 2009 14:05 Dj. Drakúla. Hin lifandi dauða vampíra, Drakúla, mun skemmta blóðþyrstum gestum annað kvöld. „
Þeir kíktu hingað á miðvikudagsmorgninum og sáu þá köngulóarvefinn. Þeir eru sem betur fer að vinna vinnuna sína," segir Páll Óskar Hjálmtýsson en eldvarnareftirlitið tók út skemmtistaðinn NASA vegna skreytinga fyrir hrekkjavökuball ársins sem verður haldið annað kvöld. Eldvarnareftirlitið gerði athugasemd við skuggalegan köngulóarvef sem hékk víðsvegar úr lofti og á veggjum skemmtistaðarins og setti draugalegan blæ á NASA. „Á pakkningunum stóð að þetta væri ekki eldfimt svo bráðnaði þetta bara," segir Páll Óskar en eldvarnareftirlitsmaðurinn fór með vefinn út á Austurvöll og sýndi Páli hvað myndi gerast ef eldur læsti sig í þessum stórhættulega köngulóarvefi. „Þetta var sem betur fer ekki veigamikill þáttur í skreytingunni," segir Páll Óskar en vefurinn var fjarlægður hið snarasta þegar í ljós kom að þarna var um raunverulega hættu að ræða. Páll Óskar segir að aðrar skreytingar hafi staðist árvökult auga eldvarnareftirlitsmannsins og var skreytt í fullu samráði við hann. Páll Óskar segir að þessi aðfinnsla muni ekki hafa nein áhrif á draugastemmninguna sem hann hyggst skapa á laugardagskvöldinu. „Það er komin heil fjölskylda af draugum sem ætlar að svífa um salinn, yfir hausamótunum á gestum," segir Páll Óskar sem lofar góðri skemmtun. Miðasala hófst á NASA klukkan 13:00 í dag og verður til 17:00. Húsið opnar svo klukkan 11 annað kvöld.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira