Nýgræðingarnir sitja lengst frá forsætisráðherranum 3. febrúar 2009 18:45
Ríkisstjórnin hyggst koma fimmtán til tuttugu frumvörpum í gegnum Alþingi á næstu vikum til að verja heimilin og atvinnulífið frekari áföllum. Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur var í morgun.Það voru viðbrigði fyrir nýja dómsmálaráðherra að mæta til fundar undir tifandi sjónvarpsmyndavélum innlendra og erlendra fréttamiðla. Nýi viðskiptaráðherrann var kominn í virðulegan ráðherrafrakkann, félagsmálaráðherrann kom akandi á gamla bílnum hans Geirs, flottasta ráðherrabílnum, en nýi menntamálaráðherran skokkaði léttfætt en kappklædd úr ráðuneyti sínu yfir Arnarhólinn.Þetta voru tímamót, Jóhanna Sigurðardóttir var sest í forsætið til að stýra fyrsta ríkisstjórnarfundi sínum og búið að skipta út kökum og kleinum fyrir nýskorið grænmeti. Ráðherrarnir hafa ekki langan tíma, í mesta lagi átta vikur áður en Alþingi verður slitið til að heyja kosningabaráttu en áður vilja þeir lögfesta 15 til 20 frumvörp. Jóhanna segir mikilvægustu verkefnin snúa að heimilunum í landinu og aðgerðum til að koma bönkunum og atvinnulífinu í gang. Einnig eru boðaðar breytingar á stjórnarskránni.Fyrstu frumvörpin eru væntanleg í vikunni, frumvörp um greiðsluaðlögun, um nauðungarsölu og um aðför, allt til að gefa fólki sem á ekki fyrir skuldunum lengri frest.En það er ekki sama hvar ráðherrarnir sitja við borðið, því ráða gamlar venjur og siðir. Næst forsætisráðherra sitja flokksformenn en þar næst ráðherrar með lengstan starfsaldur, síðan er horft til þingreynslu og loks lífaldurs þannig að því lengra sem þú ert látinn sitja frá forsætisráðherranum, því meiri nýgræðingur eru álitinn.
Mest lesið Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Klara Baldursdóttir er látin Innlent Konan sem féll í Brúará er látin Innlent Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Erlent Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Erlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Aftur logar eldur í Læradal Erlent Fleiri fréttir 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Höggin dynji á sjávarútveginum og áhugi kvenna á iðnstörfum minnkar Erlendur ferðamaður féll í Brúará Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Sjá meira