Orkuveitan fær lán á nýjan leik 3. febrúar 2009 09:52
Evrópski þróunarbankinn hefur ákveðið að opna á ný fyrir viðskipti við Orkuveitu Reykjavíkur, en þau lokuðust við hrun íslenska fjármálakerfisins síðastliðið haust. Með því opnast á ný lánalína til virkjunarframkvæmda Orkuveitunnar á Hellisheiði. „Þetta er til marks um það traust, sem bankinn ber til verkefna Orkuveitu Reykjavíkur," segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar í tilkynningu. „Íslensk fyrirtæki hafa mátt búa við það frá því í byrjun október, að erlendar fjármálastofnanir hafa að miklu eða öllu leyti lokað á viðskipti við íslensk fyrirtæki. Fjármögnun nýframkvæmda Orkuveitu Reykjavíkur komst í uppnám af þessum sökum, jafnvel þótt ljóst væri að tekjur fyrirtækisins í erlendri mynt tryggðu að það hefði alla burði til að standa við skuldbindingar sínar." Frá bankahruninu hefur Orkuveita Reykjavíkur unnið náið með erlendum fjármálastofnunum. Stjórn Evrópska þróunarbankans ákvað á fundi sínum föstudaginn 30. janúar að opna á ný fyrir lánalínu, sem bankinn samdi um við Orkuveitu Reykjavíkur vegna framkvæmda við Hellisheiðarvirkjun. Greiðslan nú nemur 6,4 milljörðum króna og er vegna þriðja áfanga virkjunarinnar sem tekinn var í notkun síðastliðið haust. „Í fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir seinkun ýmissa framkvæmda, áframhaldandi hagræðingu og sparnaði á mörgum sviðum. Afgreiðsla stjórnar CEB var ein af forsendum áætlunarinnar og verður því áfram unnið samkvæmt þeirri áætlun sem stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti undir lok síðasta árs," segir í tilkynningunni.
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Fullir í flugi Innlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots Innlent Fleiri fréttir Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar Sjá meira