Innlent

Árni Páll vill varaformannsembættið

Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason.

Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að gefa kost á sér í kjöri til varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður í næsta mánuði.

„Framundan er mikilvægt og vandasamt endurreisnarstarf, innan lands sem og í alþjóðasamstarfi," segir Árni Páll í yfirlýsingu. „Nú sem endranær þurfa jafnaðarmenn að hafa forystu og frumkvæði um brýnar umbætur sem taka mið af hagsmunum almennings um öflugt atvinnulíf og trausta velferðarþjónustu," segir Árni einnig og bætir við að það þurfi að vanda til verka enda sé mikið í húfi.

„Ég býð mig fram til þeirra verkefna og hlakka til að takast á við þau í framvarðasveit Samfylkingarinnar undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur," segir hann að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×