Innlent

Viljayfirlýsing um Tónlistarhúsið undirrituð

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framkvæmdir við Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík. Menntamálaráðuneyti og Reykjavíkurborg eru sammála um mikilvægi þess að framkvæmdum við húsið verði fram haldið.

Fram kemur í tilkynningu að Austurhöfn-TR ehf., félag í eigu ríkis og borgar, mun taka verkefnið yfir. Miðast allar áætlanir við að ekki þurfi að koma til aukin framlög ríkis og borgar frá því sem ákveðið var á árinu 2004 þegar framkvæmdir og rekstur tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar voru boðin út.

Reynt að ná fram hagræðingu

Næstu mánuðir verða nýttir til að uppfæra verkáætlanir, endurmeta og kostnaðargreina hönnun og útfærslur tónlistar- og ráðstefnuhússins og leita hagkvæmari leiða en gert var ráð fyrir í upphafi. Verktíminn verður lengdur og er stefnt að töluverðum sparnaði í framkvæmdum við húsið og innréttingar.

,,Allir fyrirliggjandi samningar við verktaka og birgja verða rýndir sérstaklega með það að markmiði að ná fram enn frekari hagræðingu og lægra verði auk þess sem lánskjör verða skoðuð sérstaklega til að ná hagstæðustu lánskjörum sem möguleg eru. Stefnt er að því að innlendir starfskraftar komi að framkvæmdinni hvenær sem því verður við komið."

Eignarhald endurskoðað taki efnahagslíf breytingum

Þótt Austurhöfn-TR ehf. leysi til sín byggingu mannvirkisins er gert ráð fyrir að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða. Austurhöfn-TR ehf. og dótturfélög þess munu vinna að heildaruppbyggingu alls svæðisins með það að markmiði að tryggja rekstrargrundvöll tónlistar- og ráðstefnuhússins og að öflug ferðaþjónusta og önnur atvinnustarfsemi geti náð fótfestu á þessu svæði.

,,Mikilvægt er að skipan í stjórn Austurhafnar-TR ehf. og dótturfélaga þess taki mið af þessum breyttu forsendum verkefnisins. Eignarhald og rekstraraðkoma ríkis og borgar verða endurskoðuð eftir því sem aðstæður í efnahagslífi taka breytingum."




Tengdar fréttir

Borgarráð: Framkvæmdum við Tónlistarhúsið framhaldið

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að framkvæmdum við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði framhaldið. Bókunin var samþykkt samhljóða í ráðinu, að sögn Óskar Bergssonar formanns borgarráðs. Sameiginleg yfirlýsing ríkis og borgar um framkvæmdina verður kynnt síðar í dag.

Tónlistarhúsið tekið í notkun 2011

Tónlistarhúsið sem nú rís við höfnina verður líklega klárað á árinu 2011 ef áætlanir standast. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra á þingi en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir forveri hennar í ráðuneytinu fagnaði því að lausn hafi fundist á málinu og að húsið verði klárað. Þær bentu báðar á að 600 störf hangi á spýtunni og muni um minna á tímum eins og nú eru uppi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×