Velferðarvakt hleypt af stokkunum 10. febrúar 2009 14:34 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun að stofnuð verði velferðarvakt í samvinnu ríkis, sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins og fleiri aðila til að fylgjast með félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins á einstaklinga og fjölskyldur og gera tillögur um viðbrögð. Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, muni skipa hóp til að stýra verkefninu, samhæfa upplýsingaöflun og gera tillögur um viðbrögð. „Efnahagsþrengingar þjóðarinnar með vaxandi atvinnuleysi og fjárhagserfiðleikum einstaklinga og fjölskyldna geta haft ýmsar félagslegar afleiðingar á borð við félagslega einangrun, andlega vanlíðan, versnandi heilsufar og aukna hættu á misnotkun áfengis og vímuefna. Þá hafa erlendar rannsóknir á afleiðingum efnahagsþrenginga sýnt hættu á auknu heimilisofbeldi og vanrækslu á börnum," segir í tilkynningunni. „Hlutverk velferðarvaktarinnar verður meðal annars að afla upplýsinga um félagslegar og fjárhagslegar afleiðingar bankahrunsins á einstaklinga og fjölskyldur, afla upplýsinga um reynslu annarra þjóða af efnahagsþrengingum, kortleggja hvaða leiðir ríki, sveitarfélög og félagasamtök hafa til að bregðast við vandanum og efna til samráðs með fulltrúum opinberra stofnana, félagasamtaka og öðrum sem lagt geta af mörkum vegna þekkingar sinnar og reynslu. Á grundvelli þessa skal velferðarvaktin gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna og samhæfa þær," segir einnig. Velferðarvaktin verður skipuð fulltrúum frá félags- og tryggingamálaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, menntamálaráðuneyti, viðskiptaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Alþýðusambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Bandalagi háskólamanna, Biskupsstofu og Rauða krossi Íslands.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira