Davíð neitar að hætta 8. febrúar 2009 17:12
Davíð Oddsson formaður bankastjórnar Seðlabankans ætlar ekki að láta af störfum í bankanum eins og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur farið fram á. Davíð skýrði frá þessu í bréfi til forsætisráðherra sem birt var á vef Seðlabankans rétt í þessu. Davíð segir í ítarlegu svarbréfi til forsætisráðherra að hann telji að bréfið sem Jóhanna hafi skrifað honum hafi ekki verið skrifað í forsætisráðuneytinu. Það brjóti allar reglur um embættisleg bréf af þessu tagi. Hann segir að bréfið virðist einungis hafa verið ritað í áróðurs- og hótunarskyni. Þá segir Davíð að hann hafi ekki haft tækifæri til að lesa nýtt frumvarp um Seðlabankann áður en að hann hafi lesið bréfið frá forsætisráðherra. Því hafi hugur hans helst staðið til þess að láta bréfinu ósvarað. Af augljósum ástæðum beri hann þó mikla virðingu fyrir því embætti sem núverandi forsætisráðherra gegni. Og þrátt fyrir þá augljósu annmarka sem séu á málatilbúnaði forsætisráðherra vilji hann ekki láta hjá líða að afstaða sín sé kunn. „Ég var skipaður til starfa 20. október 2005 til ákveðins afmarkaðs tíma. Það starf hef ég reynt að rækja eins vel og ég kann. Það gleður mig að jafnvel þeir sem helst vilja leggja til mín hafa ekki getað fundið neitt málefnalega athugavert við stöf mín og reyndar tekið sérstaklega fram að við mín störf sé ekkert að athuga. Ég þurfi bara að fara frá af óefnislegum ástæðum," segir Davíð. Þá segir Davið að það verði æ fleirum ljóst að formaður bankastjórnar persónulega og bankastjórn Seðlabankans sameiginlega hafi á undanförnum árum varað við að í óefni stefndi í bankamálum þjóðarinnar. Það sé hlálegt að ráðherra í hópi þeirra sem hlustuðu ekki og sjálf lyfti ekki litla fingri til að stemma stigu við því sem var að gerast skuli nú ganga fram með þeim hætti sem hún geri „Ég hef hins vegar aldrei hlaupist frá neinu verki sem ég hef tekið að mér og mun heldur ekki gera það nú," segir Davíð. Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að lesa bréf Davíðs.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira