Innlent

Ríkisendurskoðun gefur skussum lengri frest

Frestur sem stjórnmálasamtök og frambjóðendur hafa til að skila upplýsingum um framlög fyrri ára til Ríkisendurskoðunar hefur verið framlengdur til 10. desember næstkomandi samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Ríkisendurskoðunar.

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda skal Ríkisendurskoðun taka við og birta upplýsingar um öll bein og óbein fjárframlög sem námu 200 þúsund krónur eða hærri fjárhæð til stjórnmálaflokka, jafnt landsflokkanna sem eininga sem undir þá falla eða tengjast rekstri og eignum þeirra, á tímabilinu 2002-2006.

Þá tekur skoðunin einnig til frambjóðenda sem tóku þátt í forvali eða prófkjöri fyrir alþingis- og sveitarstjórnarkosningar á árunum 2006 og 2007 og frambjóðenda í kosningum til formanns eða varaformanns í flokkunum á tímabilinu 2005-2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×