Varnarmálastofnun kannski lögð niður 23. febrúar 2009 04:45 Varnarmálastofnun hefur tekið yfir hluta af þeim verkefnum sem áður voru rækt á herstöðinni í Keflavík. fréttablaðið/teitur
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir málefni Varnarmálastofnunar vera til rækilegrar skoðunar. Til greina kemur að leggja hana niður. „Ég tel að það séu miklir möguleikar á því að spara fé með því að sameina ýmsa þætti sem eru hjá henni og öðrum stofnunum. Í þeirri stöðu sem Íslendingar eru nú þarf að velta hverri krónu fyrir sér og gera allt sem hægt er til að spara og hagræða.“ Össur segir málið vera flókið og taka langan tíma. „Málið er í algjörum forgangi hjá mér og ég hef kallað eftir gögnum bæði hjá mínu ráðuneyti og öðrum.“ Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, telur að Varnarmálastofnun sé „leifar liðins tíma“ og hún sé óþörf viðbót og jafnvel flækjufótur í öryggissamskiptum okkar við aðrar þjóðir. Frekar eigi að byggja á Landhelgisgæslunni. Björn hélt erindi á fundi Samtaka um vestræna samvinnu í síðustu viku og ræddi meðal annars Stoltenberg-skýrsluna, um norræna samvinnu í öryggismálum. „Það gætir nokkurrar tilhneigingar til þess hjá utanríkisráðherra, Össuri Skarphéðinssyni, og Árna Þór Sigurðssyni, formanni utanríkismálanefndar, að skauta yfir hernaðarlega þáttinn í skýrslu Stoltenbergs. Þetta er í takt við að nota orðin „varnartengd verkefni“ og er dálítið aulalegt, þegar til þess er litið, að skýrsla Stoltenbergs snýst að verulegu leyti um þessi úrlausnarefni og þeir eru báðir mjög hlynntir því, að henni verði hrundið í framkvæmd.“ Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, segist sammála Birni um að Varnarmálastofnun mætti missa sín. Árni flutti einnig erindi á fundinum og benti á að ólíkt Birni hefði hann greitt atkvæði gegn stofnuninni. „Okkar sjónarmið hjá Vinstri grænum hefur verið að telji menn að það þurfi að gæta öryggis og hafa eftirlit með umferð á hafsvæðum okkar, þá eigi það að vera í höndum Landhelgisgæslunnar, Flugmálastjórnar og björgunarsveita. Við bentum á mikinn kostnað sem fer í Varnarmálastofnun og það er enn brýnna nú að huga að þeim málum.“ kolbeinn@frettabladid.is björn bjarnason
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira