Innlent

Varnarmálastofnun kannski lögð niður

Varnarmálastofnun hefur tekið yfir hluta af þeim verkefnum sem áður voru rækt á herstöðinni í Keflavík.
fréttablaðið/teitur
Varnarmálastofnun hefur tekið yfir hluta af þeim verkefnum sem áður voru rækt á herstöðinni í Keflavík. fréttablaðið/teitur

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir málefni Varnarmálastofnunar vera til rækilegrar skoðunar. Til greina kemur að leggja hana niður.

„Ég tel að það séu miklir möguleikar á því að spara fé með því að sameina ýmsa þætti sem eru hjá henni og öðrum stofnunum. Í þeirri stöðu sem Íslendingar eru nú þarf að velta hverri krónu fyrir sér og gera allt sem hægt er til að spara og hagræða.“

Össur segir málið vera flókið og taka langan tíma. „Málið er í algjörum forgangi hjá mér og ég hef kallað eftir gögnum bæði hjá mínu ráðuneyti og öðrum.“

Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, telur að Varnar­málastofnun sé „leifar liðins tíma“ og hún sé óþörf viðbót og jafnvel flækjufótur í öryggis­samskiptum okkar við aðrar þjóðir. Frekar eigi að byggja á Landhelgisgæslunni. Björn hélt erindi á fundi Samtaka um vestræna samvinnu í síðustu viku og ræddi meðal annars Stoltenberg-skýrsluna, um norræna samvinnu í öryggismálum.

„Það gætir nokkurrar tilhneigingar til þess hjá utanríkisráðherra, Össuri Skarphéðinssyni, og Árna Þór Sigurðssyni, formanni utanríkismálanefndar, að skauta yfir hernaðarlega þáttinn í skýrslu Stoltenbergs. Þetta er í takt við að nota orðin „varnartengd verkefni“ og er dálítið aulalegt, þegar til þess er litið, að skýrsla Stoltenbergs snýst að verulegu leyti um þessi úrlausnarefni og þeir eru báðir mjög hlynntir því, að henni verði hrundið í framkvæmd.“

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, segist sammála Birni um að Varnar­málastofnun mætti missa sín. Árni flutti einnig erindi á fundinum og benti á að ólíkt Birni hefði hann greitt atkvæði gegn stofnuninni.

„Okkar sjónarmið hjá Vinstri grænum hefur verið að telji menn að það þurfi að gæta öryggis og hafa eftirlit með umferð á hafsvæðum okkar, þá eigi það að vera í höndum Landhelgisgæslunnar, Flugmálastjórnar og björgunarsveita. Við bentum á mikinn kostnað sem fer í Varnarmálastofnun og það er enn brýnna nú að huga að þeim málum.“

kolbeinn@frettabladid.is

björn bjarnason



Fleiri fréttir

Sjá meira


×