Innlent

Folöldin hafa unnið hjörtu heimamanna

Folöldin hafa þegar vakið mikla athygli eftir að þau komu út til Mexíkó, enda litskrúðug og falleg. Þeim var vel fagnað við komuna eins og má sjá.
Folöldin hafa þegar vakið mikla athygli eftir að þau komu út til Mexíkó, enda litskrúðug og falleg. Þeim var vel fagnað við komuna eins og má sjá.
„Folöldin eru komin og unnu hjörtu Mexíkóanna um leið og þau birtust."

Þetta stendur í tölvupósti sem hin þýska hestakona, Regína Hof, skrifaði Huldu Gústafsdóttur á Árbakka í Rangárvallasýslu, útflytjanda sjö folalda, sem flutt voru frá Íslandi til Mexíkó.

Eins og Fréttablaðið greindi frá leitaði Regína til Huldu eftir aðstoð við að finna út úr því hvernig hægt væri að flytja hross frá Íslandi til Mexíkó. Þegar komin var áætlun um flutninginn keypti Regína folöldin sjö. Þau munu vera fyrstu íslensku hestarnir sem fluttir eru milli þessara landa eftir því sem best er vitað.

Hulda segir að afskaplega vel hafi farið um folöldin á þeirri löngu leið sem þau lögðu að baki, fyrst með flugi til New York og síðan með bíl gegnum Bandaríkin.

„Hingað komu þau, svolítið skítug en afskaplega ánægð," skrifar Regína enn fremur til Huldu. „Svo var eins og máttarvöldin hefðu ákveðið að hafa hönd í bagga með að taka á móti þeim, því daginn sem þau komu var fremur kalt í veðri miðað við það sem gerist hér, ekki nema sextán gráður yfir hádaginn og rigning, sem er ekki venjulegt hér á þessum árstíma. Þeim leið því mjög vel við komuna."

Folöldin lögðu af stað í ferðina miklu 25. nóvember. Þau komu á leiðarenda 17. desember. Hulda segir að þess hafi verið vel gætt að þeim liði vel á ferðalaginu; gott fóður, vatn og mikill og góður undirburður í bílnum. „Þau voru þrjár vikur á leiðinni, þar af sextán daga í hvíld. Þá var stoppað á búgörðum, þar sem þau fengu að teygja úr sér og leika sér í gerðum eða á túnum. Það var allt gert til þess að þau hefðu það sem best.

Ég er rosa ánægð með hvað þetta gekk vel og spennt að sjá hvort eitthvert framhald verður á þessu," bætir Hulda við. „Í fyrstu hugsaði Regína sér þessi folaldakaup einungis fyrir sig, en nú stefnir í að þetta gæti undið upp á sig vegna áhuga Mexíkóanna, sem vilji nú ólmir kynnast íslenska hestinum, prófa hann og kaupa."

jss@frettabladid.is

Tugga og vatnssopi Ekki var verra að fá heytuggu og vatnssopa við komuna.
farartækið Það var rúmt á farþegunum sjö í gegnum Bandaríkin á þessum bíl.Fréttablaðið/Regína Hof


Á spretti Tekið til fótanna í nýjum heimkynnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×