Fjörugur og góður dagur 24. desember 2009 07:00 Mikið fjör var á fæðingardeild Landspítalans í gærdag.
Níu börn komu í heiminn á fimm tímum á Landspítalanum í gærmorgun sem er vel yfir meðaltali. Eins og venja er voru sex ljósmæður á vakt, fjórar á fæðingargangi og tvær í Hreiðrinu. Allar fæðingarnar gengu vel, að sögn Guðrúnar Eggertsdóttur, yfirljósmóður á fæðingargangi, sem munar miklu þegar mikið er að gera. Þegar Fréttablaðið hafði samband um tvöleytið í gær voru ellefu börn fædd frá því að Þorláksmessa hófst á miðnætti og voru fjórar fæðingar í gangi. Það stefndi því í fjölda fæðinga umfram meðaltal sem eru um tíu fæðingar á sólarhring. „Þetta er fjörugur og góður dagur," segir Guðrún sem var létt í skapi þegar haft var samband. Guðrún segir ómögulegt að spá fyrir um hvernig hátíðardagarnir verði á fæðingardeildinni, oft sé rólegt á aðfangadag og jóladag en þó ekki alltaf. Alls hafa fæðst 3.435 börn á árinu á Landspítalanum og Guðrún segist eiga von á 87 fæðingum miðað við áætlanir en reynslan sýni að þær séu gjarnan fleiri. Miðað við það munu yfir 3.500 börn koma í heiminn á Landspítalanum í ár sem er met en 3.479 fæddust þar í fyrra. Á Akranesi var eitt Þorláksmessubarn komið í heiminn þegar Fréttablaðið hafði samband og sömuleiðis á Akureyri. Bæði Soffía Þórðardóttir, ljósmóðir á Akranesi, og Ingibjörg Jónsdóttir á Akureyri eiga von á fleiri börnum fyrir áramót en sögðu illmögulegt að spá til um komudaginn, þau kæmu bara þegar þau kæmu. - sbt
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira