Fimm prófkjör um helgina 7. mars 2009 09:48
Mikil kvennabarátta er um efstu sætin á lista Vinstri grænna í Reykjavík en úrslit úr prófkjörinu verða kunngjörð í kvöld. Prófkjör fyrir komandi alþingiskosningar eru víða um land í dag. Úrslit ráðast í fimm prófkjörum um helgina auk þess sem Framsóknarmenn í Reykjavík greiða atkvæði uppstillingu forvalsnefndar. Samfylkingin efnir til netkosninga í öllum kjördæmum og lýkur prófkjörum flokksins í Suður- og Norðausturkjördæmi í dag. Fjöldi manna býður sig fram í efstu sæti í Norðausturkjördæmi, þeirra á meðal Kristján Möller samgönguráðherra, Sigmundur Ernir Rúnarsson fjölmiðlamaður, Logi Már Einarsson arkitekt, Agnes Arnardóttir atvinnurekandi og Benedikt Sigurðarson framkvæmdastjóri. Í Suðurkjördæmi eru tveir menn sem bjóða sig aðeins fram í fyrsta sætið, þeir Björgvin G. Sigurðsson þingmaður og Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri. Klukkan níu í morgun hófst prófkjör hjá Framsóknarflokknum í Kraganum í félagsheimili flokksins við Digranesveg í Kópavogi og stendur það til klukkan sex. Tvær konur berjast þar um fyrsta sætið, þær Siv Friðleifsdóttir og Helga Sigrún Harðardóttir. Úrslitin úr því prófkjöri verða kynnt að líkindum í kvöld. Þá komu Framsóknarmenn í Reykjavík saman á aukakjördæmaþingi á Hilton Nordica í morgun og þar verður kosið um hvert sæti sem forvalsnefnd hefur stillt fólki upp í. Á morgun klukkan eitt verða svo kynntar niðurstöður úr póstkosningu Framsóknar í Suðurkjördæmi á Hótel Selfossi. Prófkjör Vinstri grænna í Reykjavík hófst í morgun klukkan tíu á skrifstofu flokksins við Suðurgötu og hægt verður að kjósa til tíu í kvöld. Úrslitin verða kynnt undir miðnætti á kosningamiðstöð flokksins við Tryggvagötu. Þar er mikil kvennabarátta um toppsætin í kjördæmunum en meðal þeirra sem bjóða sig fram í fyrsta og annað sætið eru Kolbrún Halldórsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Lilja Mósesdóttir hagfræðingur og Anna Ólafsdóttir Björnsson. Meðal karla sem bjóða sig fram í toppsætin hjá Vinstri grænum í Reykjavík eru Árni Þór Sigurðsson og Ari Matthíasson. Þá verða úrslit úr póstkosningu Vinstri grænna í Suðurkjördæmi líklega kynnt síðdegis. Atli Gíslason þingmaður býður sig þar einn fram í fyrsta sætið en tvær sunnlenskar konur í annað sætið.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Fleiri fréttir „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sjá meira