Innlent

Víða hægt að skíða í dag

Opið er í Bláfjöllum til tíu í kvöld.
Opið er í Bláfjöllum til tíu í kvöld.
Víða er hægt að skella sér á skíði í dag. Skíðasvæðin á Dalvík, í Hlíðarfjalli á Akureyri, á Siglufirði og Tindastóll í Skagafirði eru opin. Þá eru skíðasvæði höfuðborgarbúa í Skálafelli og Bláfjöllum opin. Opið er til tíu í kvöld í Bláfjöllum. Eftir klukkan fjögur kostar þúsund krónur inn á svæðið og rennur sú upphæð óskipt til félagsins Breið bros, sem eru samtök barna með skarð í vör.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×