Tár féllu á síðasta tökudegi 16. júní 2009 03:00 Tökuliðið felldi tár yfir lokaatriðinu í Mömmu Gó Gó „
Sko, þetta er pínulítið flókið. En við leikum sem sagt tökuliðið hans Hilmis Snæs í bíómynd sem hann er að leikstýra í kvikmyndinni Mömmu Gó Gó," segir Ragnar Bragason, leikstjóri Fangavaktarinnar. Eins og greint var frá á forsíðu Fréttablaðsins voru tökulið sjónvarpsþáttarins Fangavaktin og tökulið kvikmyndarinnar Mömmu Gó Gó stödd á nánast sama fermetranum við Suðurgötu. Föruneyti Mömmu Gó Gó var að taka upp atriði þar sem ein af aðalpersónum myndarinnar, Hilmir Snær, er að leikstýra eigin kvikmynd. Hins vegar sárvantaði tökulið til að leika í smá atriði og að sögn Ragnars voru menn fljótir að hugsa. Og ákváðu að nýta bara tökulið Fangavaktarinnar í umrædda senu. „Því miður þurfti leikarinn sem ég var að vinna með að þjóta þannig að ég tók þetta bara á mig og lét lögguna elta mig," útskýrir Ragnar sem mun því, að öllum líkindum, bregða fyrir í mýflugumynd í Mömmu Gó Gó ásamt eigin tökuliði. Tökum á Mömmu Gó Gó lauk hins vegar í Skagafirðinum á föstudagskvöldið. Og þá tóku tilfinningarnar öll völd. „Við áttum alveg gullfallega stund fyrir norðan, fengum veður eftir pöntun, það var bara eins og almættið hefði blessað okkur" segir Guðrún Edda Þórhannesdóttir, framleiðendi myndarinnar. Og að hennar sögn féllu ófá tár þegar aðalleikararnir, Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld, sátu í skagfirska sólarlaginu í lokaatriðinu. „Þetta var alveg ótrúlegt, menn grétu yfir þessari senu. Bókstaflega. Og svo bara skálað í sumarnóttinni og góðu verki fagnað," segir Guðrún. Mamma Gó Gó fer nú í klippiherbergið en Guðrún segir enn ekki ákveðið hvenær hún verður frumsýnd. „September kemur alveg til greina en það er kannski aðeins of knappur tími fyrir okkur. Við sjáum bara til."
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Sjá meira