Skapandi ungmenni fá Erróverðlaun Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 16. júní 2009 17:28 Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi í menntaráði, mældi fyrir tillögunni um Erróverðlaunin. Mynd/GVA
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að stofna til svokallaðra Erróverðlauna meðal reykvískra ungmenna. Verðlaunin verða veitt ungmennum fyrir frumleika og leikni í listsköpun. Þau verða afhent annað hvert ár í tengslum við fyrirhugaða barnalistahátíð. Tillaga þessa efnis var samþykkt á fundi borgarstjórnar rétt í þessu. Erróverðlaununum er ætlað að vekja athygli á gildi listmenntunar í skólum, ýta undir skapandi hugsun og menningarlæsi ungmenna. Með verðlaununum er jafnframt stuðlað að samþættingu listgreina og annarra námsgreina í skólum. Verðlaunin verða bæði veitt einstaklingum og hópum fyrir frumleika, sköpunarkraft og leikni í listsköpun í hinum ýmsu listgreinum. Við hæfi þótti að nefna verðlaunin eftir listamanninum Erró enda hefur hann hvatt til aukinnar áherslu á listsköpun barna. Erró er jafnframt verndari verðlaunanna. Marta Guðjónsdóttir, frummælandi tillögunnar og fulltrúi í menntaráði, sagði sérstaklega ánægjulegt að listamaðurinn hefði samþykkt að tengja nafn sitt við verðlaunin. „Erró er ekki aðeins einn af okkar færustu heldur þekktustu listamönnum á heimsvísu. Tilvísun í nafn hans eykur tvímælalaust vægi verðlaunanna," sagði hún. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri tók undir orð Mörtu og sagði að verðlaunin myndu án efa öðlast verðugan sess í hugum borgarbúa. Menntaráð Reykjavíkur og Menningar- og ferðamálaráð skipa fulltrúa í sameiginlegan starfshóp til að sjá um framkvæmd og undirbúning verðlaunanna. Verðlaunin verða afhent í fyrsta sinn í tengslum við fyrirhugaða barnalistahátíð næsta vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira