Skoða að beina frekar fé í LÍN en atvinnubætur 16. júní 2009 04:00 Menntamálaráðherra sagðist gera sér grein fyrir því að 106 þúsund krónur á mánuði væri afar lág framfærsla. Mynd/Anton
Til athugunar er hvort hagkvæmara væri að beina ríkisfé inn í Lánasjóð íslenskra námsmanna frekar en atvinnuleysistryggingasjóða til að laða fólk í nám. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra á Alþingi í gær. Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Katrínu hvort til stæði að hækka lánin fyrir næsta skólaár, í það minnsta þannig að þau héldu í við verðþróun. „Það þarf að vera raunhæfur möguleiki að lifa á þessum lánum,“ sagði Jónína. Katrín sagði að það eitt að verðbæta lánin myndi kosta ríkissjóð 1,4 milljarða. Það væri alveg ljóst að þeir peningar væru ekki til í menntamálaráðuneyti sem þyrfti að skera niður. Hún sagði hins vegar að til skoðunar væri í menntamála- og félags- og tryggingamálaráðuneyti, hvort einhvers konar samspil Lánasjóðsins og atvinnuleysistryggingasjóðs væri mögulegt. Þannig kynni að vera hægt að bjóða námsmönnum upp á það að þiggja atvinnuleysisbætur, þótt þeir væru skráðir í námskeið. Enn fremur væri í skoðun hvort það væri þjóðhagslega hagkvæmt að beina frekar auknu fé í Lánasjóðinn en í atvinnuleysistryggingasjóð. Þannig væri hugsanlega hægt að laða fólk í nám.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira