Ummæli forsvarsmanna Bónuss byggð á misskilningi 16. júní 2009 13:09 Mynd/Anton Brink
Ummæli forsvarsmanna Bónuss um verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands er byggð á misskilningi, að fram kemur í tilkynningu frá Alþýðusambandinu. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir í Fréttablaðinu í dag að Alþýðusambandið villi um fyrir neytendum með því að bera saman tvær ólíkar vörutegundir í verðkönnun sinni. Málið snýst um verðkönnun sem verðlagseftirlitið framkvæmdi nýverið og þar kom meðal annars fram að ferskur ávaxtasafi kosti 219 krónur í Bónus en 99 krónur í Krónunni. Þessu hafnar Guðmundur og segir að ekki hafi verið að bera saman sömu vörurnar. Fram kemur í tilkynningu frá Alþýðusambandinu að umrædd verðkönnun hafi verið framkvæmd í öllum verslunum á sama tíma og skráð hafi verið niður verð á þeim vörum sem stóðu neytendum til boða í versluninni á þeim tímapunkti. „Meðal þeirra vara sem kannaðar voru, var ódýrasta fáanlega lítraverð af hreinum appelsínusafa í hverri verslun. Er þar eingöngu miðað við að varan uppfylli sett skilyrði en horft fram hjá vörumerkjum og gæðamati að öðru leiti," segir í tilkynningunni. Þetta sé gert í þeirri viðleitni að upplýsa neytendur um hvar mest magn af tiltekinni vöru fáist fyrir lægsta verðið. Þetta sé skýrt tekið fram við birtingu könnunarinnar. „Í tilviki Bónuss, var ódýrasta fáanlega lítraverð af hreinum appelsínusafa kr. 219 þegar verðkönnun ASÍ fór fram í Bónusversluninni við Langholt á Akureyri þriðjudaginn 9.júní sl. Ummæli forsvarsmanna Bónuss virðast því á misskilningi byggð."
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira