Vilja fella ríkisábyrgð Icesave-skulda úr gildi 16. júní 2009 03:00 InDefence telur að axla eigi ábyrgð og takast á við vandamálið nú þegar í stað þess að fleyta vandamálunum á undan sér. Mynd/Arnþór „
Við verðum að neita að samþykkja ríkisábyrgð á Icesave-skuldbindingarnar án einhvers konar fyrirvara," segir Ólafur Elíasson, einn af forsvarsmönnum InDefence-hópsins um Icesave-samninginn. Hann telur að líkt og staðan sé nú eigi bresk og hollensk yfirvöld einungis vafasama lagalega kröfu á Íslendinga. Ólafur bendir hins vegar á að ef samningur er samþykktur þá munu Bretar og Hollendingar eiga fullkomlega gilda lagalega kröfu á hendur íslenska ríkinu að sjö árum liðnum. Því sé nauðsynlegt að bregðast við nú. Nauðsynlegt er að neita samningnum og setjast aftur að samningaborðinu. Samkvæmt gögnum frá InDefence-hópnum er talið að vaxtagreiðslur af Icesave-láninu verði um 40 milljarðar á ári eftir sjö ár. Í fréttayfirlýsingu frá hópnum er lýst áhyggjum af þeim skuldbindingum sem samningurinn felur í sér og erfitt sé að afla nægilegra gjaldeyristekna til að standa undir þeim byrðum sem felast í vaxtagreiðslum af gjaldeyrisláninu frá breskum og hollenskum stjórnvöldum. „Við lifum í upplýstu samfélagi og þess er krafist að spurt sé spurninga í dag en ekki að sjö árum liðnum," segir Magnús Árni Skúlason, annar af forsvarsmönnum hópsins. „Menn verða að axla ábyrgð, ekki fleyta þessu á undan sér heldur takast á við vandamálið strax," segir hann. Magnús bendir á að það sé í anda hins nýja Íslands að skoða málið nú og taka upplýsta ákvörðun í dag. Á fundinum kom fram skýr krafa um að alþingismenn og aðrir ráðamenn fái allar þær upplýsingar sem til eru svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun um málið. Forsvarsmenn InDefence-hópsins telja upplýsingaflæði og samvinnu við hópinn ekki nægilegt. Bent var á að þegar hópurinn hélt til Bretlands í vetur þá fékk hann meiri tíma með breskum yfirvöldum en hópurinn hefur fengið með íslenskum ráðamönnum. „Við viljum ekki að landið hætti að greiða skuldir heldur að landið hafi forsendur til að greiða skuldirnar niður," segir Magnús Árni Skúlason, einn af forsvarsmönnum hópsins. Ein af þeim lausnum sem hópurinn leggur til er að greiða fast hlutfall af landsframleiðslu á næstu árum.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Sjá meira