Innlent

Tekur á móti Ingibjörgu Sólrúnu

Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingar.
Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingar.

Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar er nú á leið til Keflavíkur til þess að taka á móti formanni sínum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem verið hefur í læknismeðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi undanfarið, mun lenda á Leifsstöð klukkan fjögur í dag.

Miðað við yfirlýsingar Ingibjargar í gær mun hún hinsvegar leggjast inn á Landsspítalann strax við komuna heim en æxli sem hún greindist með í heila mun vera góðkynja. Hluti af því var fjarlægður í aðgerð ytra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×