ASÍ gefst upp á ríkisstjórninni 23. janúar 2009 05:15 „Við erum að reyna að búa okkur til tíma,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Formenn aðildarfélaga ASÍ taka í dag afstöðu til tillögu atvinnurekenda um að fresta framlengingu kjarasamninga fram í júní. Upphaflega var stefnt að nokkurs konar þjóðarsátt með aðkomu ASÍ, SA, hins opinbera og ríkisstjórnarinnar en nú er lagt til að endurskoðun verði frestað og hefur miðstjórn ASÍ hvatt ríkisstjórnina til að boða til kosninga í vor. „Söguleg tíðindi," segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, SGS. Samkvæmt kjarasamningum sem átti að endurskoða um miðjan febrúar er launahækkun 1. mars og svo aftur 1. janúar 2010. Atvinnurekendur vilja fresta þessum dagsetningum þannig að launahækkanir komi seinna og kostnaðarlækkun framkallist hjá atvinnulífinu. Kristján segir varnarviðbrögð að fresta samningum frekar en að slá þá af. „Atvinnurekendur hafa óskað eftir viðræðum um meiri sveigjanleika með tímasetningar til að efna ákvæði kjarasamninga en þó þannig að á samningstímanum reyni þeir að standa við innihaldið. Þetta gera þeir vegna þess að fyrirtækin eru illa stödd. Við höfum sagt að þetta komi til álita," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Gylfi bendir á að atvinnurekendur geti líka sagt samningunum upp. „Við erum að reyna að búa okkur til tíma til að vinna úr þessum erfiðu aðstæðum," segir hann. Forystumenn á vinnumarkaði tilkynntu ríkisstjórninni í nóvember að hún þyrfti að treysta ímynd sína og endurnýja umboð sitt með uppstokkun. Hún væri rúin trausti. Gylfi segir að ríkisstjórnin hafi ekki viljað neina uppstokkun og því sé komið að endalokum þess sem hún geti staðið að. Verkalýðshreyfingin treysti sér ekki til að ræða við ríkisstjórnina við núverandi aðstæður. „Við erum að ræða við ASÍ um mögulega frestun samninganna en Samtök atvinnulífsins hafa hingað til ekki tekið afstöðu með eða á móti ríkisstjórninni. Við höfum alltaf unnið með ríkisstjórninni," segir Þór Sigfússon, formaður SA. „Að mínu viti hefur margt gengið vel og margt gengið illa líka. Ég hefði viljað sjá menn bretta meira upp ermar núna, það eru vonbrigði mín, en það þýðir ekki að ég hefði viljað sjá skipt um ríkisstjórn," segir hann. ghs@frettabladid.is
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Sjá meira