Innlent

Sjálfstæðisflokkurinn styður aðgerðir lögreglunnar

Frá mótmælum undanfarinna daga.
Frá mótmælum undanfarinna daga.

Sameiginlegur fundur miðstjórnar og þingflokks Sjálfstæðisflokks harmar að ofbeldishópar hafi reynt að eyðileggja og sundra friðsömum mótmælaaðgerðum almennings.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem samþykkt var á fundi þingflokksins og miðstjórnar í Valhöll í dag. Þar segir ennfremur:

„Fundurinn lýsir fullum stuðningi við hófsamar og óhjákvæmlegar aðgerðir lögreglunnar, sem hafa beinst að því að verja rétt almennings til eðlilegra og friðsamlegra mótmælaaðgerða."

Þá sendi fundurinn Geir H. Haarde og fjölskyldu hans sínar bestu kveðjur og vonir um að læknismeðferð takist vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×