Fullnaðarsigur Breta 7. júní 2009 13:47 Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópuseturs Háskólans á Bifröst. Mynd/Stefán Karlsson
Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópuseturs Háskólans á Bifröst, segir eðlilegt að Bretar séu glaðir með Icesave samkomulagið enda hafi þeir unnið fullnaðarsigur á Íslendingum í málinu. Samkomulag Íslands við Bretland og Holland vegna Icesave reikningana var undirritað í fyrrinótt. Samkvæmt því munu Bretar aflétta hryðjuverkalögunum 15. júní og þá mun Tryggingasjóður innstæðueigenda ábyrgjast innstæður eigenda reikningana upp að því lágmarki sem tilskipun Evrópusambandsins gerir ráð fyrir. Samkvæmt því ábyrgist sjóðurinn 650 milljarða íslenskra króna vegna Icesave í löndunum tveimur.Bretar bæði með axlabönd og belti „Athygli vekur að Íslendingar bera alla áhættuna en Bretar ganga frá samningaborðinu með bæði axlabönd og belti," segir Eiríkur á vefsíðu sinni. Eftir bankahrunið og beitingu hryðjuverkalaganna skrifaði Eiríkur greinar um málið sem birtust í breskum fjölmiðlum. „Eins og ég hef áður sagt á þessum vettvangi og víðar þá fengu íslensk stjórnvöld gullið tækifæri til að varpa ábyrgðum á Icesave-skuldunum yfir á bresk stjórnvöld um leið og þau beittu okkur hryðjuverkalögum og frystu eignir bankans í Bretlandi," segir Eiríkur og bætir við að lögin hafi verið kolólögleg aðgerð sem brutu gegn ESS-samningunum og fleiri alþjóðalögum.Þjóð í skuldaklafa Stjórnmálafræðingurinn segir óskiljanlegt að íslensk stjórnvöld hafi samþykkt að skuldbinda þjóðina í skuldaklafa sem augljóslega sé á ábyrgð bresku ríkisstjórnarinnar. Eiríkur bendir á að málið sé ekki bara lagalegt álitamál heldur einnig pólitísk. Alþjóðastjórnmál lúti öðrum lögmálum heldur en innanlandsstjórnmál og þjóðarréttur sé mun loðnara fyrirbæri en landsréttur.Krókur á móti bragði „Á þessum grunni hef ég haldið því fram að þegar Bretar beittu Ísland hryðjuverkalögunum hafi orðið til tækifæri fyrir íslensk stjórnvöld, - að koma með krók á móti bragði og færa fram þau rök, að þar með hefðu bresk stjórnvöld tekið yfir skuldbindingar þeirra fjármálafyrirtækja sem þau tóku traustataki með ólögmætum hætti," segir Eiríkur. Að lokum segir hann: „En nú er semsé búið að reyra skuldaklafann pikkfastan á bak allra Íslendinga. Ég verð að viðurkenna að mér þykir svolítið erfitt að fagna slíkri niðurstöðu."
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Sjá meira