Innlent

Alvarleg aðför að kjörum sjómanna

Vestmannaeyjum í dag.
Vestmannaeyjum í dag. MYND/Gísli Óskarsson
Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um breytingu á kvótakerfinu eru alvarleg aðför að kjörum íslenskra fiskimanna. Þetta sagði formaður félags skipstjórnarmanna í ávarpi sínu í tilefni sjómannadagsins. Hátíðarhöld voru víða í dag.

Sérstök hátíðardagskrá var í Sjóminjasafninu á Grandagarði þar sem sjómenn voru heiðaraðir fyrir störf sín. Þá héldu sjávarútvegsráðherra og fulltrúar útvegsmanna og sjómanna ræður. Þeir véku meðal annars orðum að þeim breytingum sem ríkisstjórnin hefur hug á að gera á kvótakerfinu og fela í sér að aflaheimildir verða innkallaðar á tuttugu ára tímabili.

Árni Bjarnason, formaður félags skipstjórnarmanna, sagði það hljóta að blasa við að útgerð sem missir á hverju ári hluta af aflaheimildum sínum og þarf að leigja kvóta sé ekki líkleg til að geta samið um óbreytt kjör við sína sjómenn og þaðan af síður kjarabætur. Ef af yrði væri það alvarleg aðför að kjörum íslenskra fiskimanna.

Á meðan það rigndi á hátíðargesti í höfuðborginni lék veðrið við hátíðargesti í Vestmannaeyjum þar sem sjómannafjör var haldið í Friðarhöfn. Hátíðarhöld hafa staðið yfir í bænum frá því á föstudaginn og margir gert sér glaðan dag. Keppt var í kappróðri milli áhafna skipa, tunnuhlaupi og koddaslag þar sem flestir enduðu í köldum sjónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×