Innlent

Vill endurskoða kvótakerfið

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarformaður Faxaflóahafna
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarformaður Faxaflóahafna Mynd/GVA
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir eðlilegt kvótakerfið sé endurskoðað í þeim tilgangi að um það megi ríkja nauðsynleg sátt meðal þjóðarinnar.

„Ég hef tekið undir gagnrýni á kvótakerfi sem færði útgerðarmönnum sameiginleg verðmæti þjóðarinnar endurgjaldslaust til eignar og skipti auðlindinni á milli skilgreindra einstaklinga og fyrirækja,“ sagði Júlíus í ávarpi sem hann flutti á hátíðadagskrá Sjómannadagsráðs í dag.

Honum hugnast þó ekki fyrningarleiðin sem ríkisstjórnin hefur talað fyrir. Landsmenn geri þá kröfu til stjórnvalda að þau hafi yfirsýn sem nauðsynleg sé til að gera ekki vont ástand verra.

„Ef fyrna á 50 milljarða á næstu 5 árum munu mörg stór og mikilvæg fyrirtæki, jafnt fyrir dreifðar byggðir landsins sem og höfuðborgarsvæðið, standa uppi með neikvætt eigið fé og munu þar af leiðandi ekki verða rekstrarhæf -  verða gjaldþrota. Óvissan sem þegar ríkir varðandi fyrningarleiðina hefur lamandi áhrif.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×