Gengið verður frá fjölmörgum lánum á næstunni Heimir Már Pétursson skrifar 7. júní 2009 13:00 Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Mynd/Daníel Rúnarsson
Fjármálaráðherra reiknar með að á næstu dögum eða vikum verði gengið frá lánum fjölmargra þjóða til Íslendinga vegna bankahrunsins. Sendinefnd er á leið til Moskvu til að ræða allt að 60 milljarða lántöku frá Rússum. Samkomulag ríkisstjórnarinnar við Breta og Hollendinga vegna Icesave er í raun hluti af efnahags- og endurreisnaráætlun stjórnvalda, þar sem slíkt samkomulag var skilyrði að hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ýmissra vinaþjóða fyrir því að koma Íslendingum til aðstoðar með lánveitingum. Nú þegar samkomulagið liggur fyrir má reikna með að skriður komist á samninga um lán frá þeim þjóðum sem gefið hafa fyrirheit um lánveitingar. Reyndar hefur Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra greint frá því að samningar við Norðurlandaþjóðirnar séu komnir langt á veg. Og greint hefur verið frá því að íslensk sendinefnd sé á leið til Moskvu í Rússlandi, til að semja um lán frá Rússum. Steingrímur sagði á fréttamannafundi ríkisstjórnarinnar í gær að það væri ánægjulegt að búið væri að bóka fund með Dimitri Pankin fjármálaráðherra Rússlands í næstu viku. Hann vonaðist til að það tækist að ganga frá lánasamningum við hin Norðurlöndin jafnvel í þessari viku. Rússar hafi nefnt 500 milljónir dollara á sínum tíma, en ekki væri ljóst hvaða upphæð væri í boði frá þeim nú. Á núverandi gengi krónunnar eru 500 milljónir dollara um 62 milljarðar króna. Heildarlántaka ríkissjóðs frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verður 2,1 milljarðar dollara, eða um 260 milljarðar króna og á sínum tíma var talað um að hópur ríkja myndi lána Íslendingum samsvarandi upphæð. Eina þjóðin sem gengið hefur frá láni til Íslendinga eru Færeyingar, sem lánuðu okkur sex milljarða króna. „En málin eru nánast í höfn gagnvart hinum Norðurlöndunum og langt komin varðandi Pólverja," sagði Steingrímur á fréttamannafundinum í gær. Að ná þessum málum fram og klára samningana um Icesave væru mikilvægir áfangar í heildaráætlun stjórnvalda.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira