Innlent

Vill þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, vill að þjóðin greiði atkvæði um Icesave-samkomulagið sem undirritað var í fyrrakvöld. Samkomulagið kallar hún ,,gúmmítékkapólitík".

Birgitta telur eðlilegt að almenningur komi að málinu. „Ég styð það heilshugar. Það er í stefnu okkar að þjóðin fái að kjósa um mikilvæg efni sem varða framtíðina," segir Birgitta.

Þá gagnrýnir Birgitta skort á upplýsingum til þingmanna um samkomulag ríkisstjórnarinnar við bresk og hollensk stjórnvöld. Hún hafi meðal annars kallað eftir upplýsingum í utanríkismálanefnd sem hún hafi ekki fengið.

„Þetta útspil er gúmmítékkapólitík hjá ríkisstjórninni," segir Birgitta um samkomulagið. Hún óttast að kreppan muni verða enn lengri og þé sé hætt við því að þeir sem ákveði að flytja úr landi komi ekki aftur. „Þetta er grafalvarlegt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×