Innlent

Hefði þurft þjóðstjórn í vetur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigmundur Davíð gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að kynna sér ekki hugmyndir Framsóknarflokksins i´efnahagsmálum. Mynd/ GVA.
Sigmundur Davíð gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að kynna sér ekki hugmyndir Framsóknarflokksins i´efnahagsmálum. Mynd/ GVA.
Það hefði átt að mynda þjóðstjórn eftir að upp úr stjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins slitnaði, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Samfylkingin hefði hins vegar ekki tekið það í mál vegna þess að flokkurinn hefði viljað forsætisráðuneytið.

Sigmundur gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir að hafa ekki kynnt sér tillögur framsóknarmanna í efnahagsmálum. Það væri þörf á róttækum aðgerðum. Ekki væri nóg að grípa til ráðstafana þegar að einstaklingar eða fyrirtæki stæðu frammi fyrir gjaldþroti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×