Innlent

Fyrsta hlassið í Landeyjahöfn

Sumir trukkanna sem notaðir eru við framkvæmdina geta tekið allt að 55 tonn af grjóti.mynd/jt
Sumir trukkanna sem notaðir eru við framkvæmdina geta tekið allt að 55 tonn af grjóti.mynd/jt

Fyrsta grjótfarminum var sturtað í Landeyjahöfn á laugardaginn. Til stendur að reisa höfn í Bakkafjöru fyrir ferjusiglingar til Vestmannaeyja.

Gerðir verða tveir um það bil 700 metra langir garðar sem liggja í boga og vernda höfnina og ferjubryggjuna fyrir ágangi sjávar. Alls verður notað um 1,3 milljónir tonna af grjóti í garðana, en heildarmagnið sem fer í framkvæmdina er um tvær milljónir tonna. Gert er ráð fyrir að uppbyggingu brimvarnargarðanna ljúki í október, en verklok við höfnina eru áætluð í júlí á næsta ári. Alls munu um áttatíu manns starfa við verkið í sumar.- kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×