Vilja stjórnmálasamband við stjórn Hamasliða í Palestínu 18. maí 2009 10:37 Sveinn Rúnar Hauksson er formaður Félagsins Íslands-Palestínu. Mynd/GVA
Félagið Ísland-Palestína skorar á ríkisstjórnina að koma þegar í stað á sambandi við ríkisstjórn Palestínumanna á Gazaströndinni, sem er á yfirráðasvæði Hamassamtakanna, til jafns við bráðabirgðastjórnina sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, skipaði í Ramallah. Félagið vill að ríkisstjórnin virði sjálfsákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar í samræmi við ályktun Alþingis frá maí 1989 og ályktanir Sameinuðu þjóðanna. Í því felist meðal annars að viðurkenna þau stjórnvöld sem séu lýðræðislega kjörin af þjóðinni. Í síðustu kosningum til Palestínska löggjafarþingsins sem fram fóru í janúar 2006 hafi Hamassamtökin fengið meirihluta á þinginu eða nærri 60% þingmanna. „Þrátt fyrir úrslit kosninganna og að stjórn hefði verið mynduð sem naut stuðnings hinna ólíku stjórnmálaafla í landinu neituðu Ísraelsstjórn, Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið að viðurkenna lýðræðislega stjórn Palestínumanna. Af Vesturlöndum var Noregur eina ríkið sem viðurkenndi palestínsku stjórnina," segir í ályktun félagsins. Í framhaldinu hafi komið til mikilla átaka Hamas og Fatah-samtakanna á Gaza sem Ísrael og Bandaríkjastjórn hafi kynt undir. Nú séu tvenn palestínsk stjórnvöld í landinu. Að mati félagsins er stjórnmálasamband við stjórnina á Gaza framlag til sameiningar palestínsku stjórnmálaaflanna, en viðræður eru í gangi á milli þeirra meðal annars um myndun nýrrar þjóðstjórnar. „En fyrst og fremst er það stuðningur við brýnasta verkefnið gagnvart Palestínu nú, sem er að rjúfa herkvína um Gaza."
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Fleiri fréttir Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Sjá meira