Innlent

Hætt verði við byggingu Tónlistarhússins í núverandi mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum ráðherra.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum ráðherra. Mynd/Stefán Karlsson
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum ráðherra, segir að við núverandi aðstæður í efnahagsmálum sé skynsamlegt að leggja núverandi áætlanir Tónlistar- og ráðstefnuhús til hliðar og skoða uppbygginguna upp á nýtt.

„Við gætum jafnvel staðið frammi fyrir þeirri nöturlegu staðreynd að skynsamlegast væri að hætta við byggingu TRH við höfnina og hefja þetta verkefni uppá nýtt á glænýjum og breyttum forsendum. Forsendum sem er í takt við gjörbreyttar aðstæður í efnahagslífi þjóðarinnar," segir Þórunn í pistli á heimasíðu sinni.

Þórunn segir að ríkisstjórnin og borgaryfirvöld standi frammi fyrir gríðarlegum útgjöldum vegna hússins. Nýjustu tölur sýni að áætlanir muni ekki standast og kostnaður gæti aukist gífurlega. Staðan kalli á algjört endurmat á forsendum þess að byggja húsið við höfnina.

Framundan er gríðarlegur niðurskurður ríkisútgjalda og væntanlega hjá borginni líka, að mati Þórunnar.

„Við þessar aðstæður er skynsamlegt að leggja núverandi áætlanir TRH til hliðar og skoða uppbygginguna uppá nýtt. Það er ekki sársaukalaus aðgerð en tímarnir sem við lifum á kalla á fátt annað en erfiðar ákvarðanir í ríkisbúskapnum og fæstar þeirra munu auka vinsældir stjórnmálamanna," segir þingmaðurinn.

Pistil Þórunnar er hægt að lesa hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×