Innlent

Taldi lögreglu hafa hirt bílinn

Hann var heldur óhress ungi maðurinn sem kom á lögreglustöðina á Selfossi í gær og kvartaði yfir því að lögreglan skyldi hafa hirt af sér bílinn í heilu lagi, þótt hann hafi ekki sinnt tilmælum lögreglu um að færa hann til skoðunar. Lögreglan kannaðist við að hafa klippt númerin af bílnum, en ekki að hafa tekið bílinn. Hóf eigandinn þegar leit að honum og lögregla var að fara að lýsa eftir honum á landsvísu þegar í ljós kom að vinir mannsins höfðu gert honum þann hrekk að fela bílinn. Honum var ekki skemmt, en ætlar að láta skoða bílinn í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×