Innlent

Velti bílnum með heila björgunarsveit á eftir sér

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Hann var lánsamur í óláni sínu, ökumaðurinn sem velti bíl sínum út af þjóðveginum sunnan við Staðarskála í Hrútafirði síðdegis í gær, því næsti bíll á eftir honum var björgunarsveitarbíll, með heila björgunarsveit um borð. Björgunarmennirnir náðu ökumanninum út úr bílnum, settu á hann hálskraga og bjuggu um hann á bakbretti. Að því búnu óku þeir til móts við sjúkrabíl frá Hvammstanga sem ók manninum á sjúkrahús. Hann var ekki í lífshættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×