Innlent

Jóhanna flytur stefnuræðu sína í kvöld

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína á Alþingi laust fyrir klukkan átta í kvöld og í framhaldinu fjalla þrír fulltrúar hvers flokks á þingi um ræðuna. Ekki er búið að draga um röð flokkanna.

Jóhanna flutti síðast stefnuræðu sem forsætisráðherra 4. febrúar sem var fáeinum dögum eftir að minnihlutastjórn Samfylkingar og VG var mynduð. Sem kunnugt er mynduðu flokkarnir nýverið meirihlutastjórn.

Allar fastanefndir Alþingis koma saman í fyrsta sinn í dag. Fyrsti hefðbundni þingfundur nýs þings fer fram á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×